Fotbolti.net
05.01.21 - 15:52
Elvar Geir Magnússon
Ítalski boltinn

Cuadrado með veiruna

Juan Cuadrado.

Juan Cuadrado.

Canon

Mynd: Getty Images

Juan Cuadrado, leikmaður Ítalíumeistara Juventus, hefur greinst með Covid-19 veiruna og er kominn í einangrun.

Þessi 32 ára Kólumbíumaður getur bæði spilað á hægri kanti eða í bakverðinum og hefur spilað alla leiki nema einn með Juventus í ítölsku A-deildinni á þessu tímabili.

Hann fékk rautt spjald í tapinu gegn Fiorentina rétt fyrir jól og var í leikbanni um síðustu helgi þegar Juve vann Udinese.
Juventus er sem stendur í fimmta sæti og á stórleik gegn AC Milan annað kvöld. Cuadrado verður að sjálfsögðu ekki með í þeim leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.