02.10.26 - 11:23
Elvar Geir Magnússon
Man City hefur staðfest áfrýjun

Sjeik Mansour eigandi Manchester City og stjórnarformaðurinn Khaldoon Al Mubarak.

Mynd: EPA

Halda fram sakleysi sínu.

Manchester City hefur staðfest að það hafi áfrýjað dómi ensku úrvalsdeildarinnar eftir að óháð nefnd dæmdi félagið sekt um fjölda alvarlegra fjárhagsbrota.

TENGT EFNI
Enska úrvalsdeildin staðfestir niðurstöðuna
Í stuttri yfirlýsingu segir félagið að úrskurður nefndarinnar innihaldi „augljós efnisleg mistök, bæði hvað varðar lagalegar reglur og staðreyndir".
City hefur ítrekað haldið fram sakleysi sínu og heldur því áfram. Félagið segist hafa lagt fram „yfirgripsmikil óyggjandi sönnunargögn".
Breska ríkisútvarpið segir að City muni í vörn sinni halda því fram að lykilstyrktarsamningar væru fjármagnaðir af stjórnvöldum í Abú Dabí en ekki eigendum félagsins.
Í dómnum kemur fram að City hafi gert gervisamninga við fjölda viðskiptafélaga sem hluti af áætlun til að dylja leynilega fjármögnun. Þar segir segir að City hafi kerfisbundið brotið úrvalsdeildarreglur í næstum áratug.
Í einum kafla reglugerðar ensku úrvalsdeildarinnar segir að niðurstaða í áfrýjun skuli koma innan tólf vikna frá því að hún var tekin fyrir. En einnig er hægt að víkja frá þessari reglugerð ef nauðsyn krefur, sem þýðir að það er óljóst hversu langan tíma ferlið mun taka.