02.10.26 - 09:59
Elvar Geir Magnússon
Daníel Tristan í hóp á morgun - Kristall dettur út

Kristall Máni Ingason.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kristall Máni Ingason.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Kristall Máni Ingason, leikmaður Brann, verður ekki meira með Íslandi í þessum landsleikjaglugga vegna meiðsla.
Kristall kom inn sem varamaður á 85. mínútu í 1-1 jafnteflinu gegn Eistlandi en var ónotaður varamaður í 3-0 útisigrinum í Lúxemborg.
Daníel Tristan Guðjohnsen verður í hópnum gegn Búlgaríu á morgun en ekki gegn Eistlandi á þriðjudag þar sem hann mun fara með U21 landsliðinu til Færeyja.

TENGT EFNI
Daníel Tristan: Reyni að sýna hversu góður ég er hérna eða í A landsliðinu
Tilkynning KSÍ:
Kristall Máni Ingason á við meiðsli að stríða og verður ekki með A landsliði karla í komandi leikjum við Búlgaríu og Eistland í Þjóðadeild UEFA. Daníel Tristan Guðjohnsen kemur í A hópinn í hans stað fyrir leikinn við Búlgaríu, en heldur síðan til Færeyja með U21 liðinu þar sem íslenska liðið mætir því færeyska á þriðjudag.
Ekki hefur verið tekin ákvörðun að svo stöddu hvort annar leikmaður verði kallaður í leikmannahóp A liðsins fyrir lokaleikinn í glugganum, gegn Eistlandi á þriðjudag.

Daníel Tristan Guðjohnsen.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson