Fotbolti.net
02.10.26 - 09:25
Elvar Geir Magnússon

Dómurinn hefur veruleg áhrif á heilindi leiksins

Etihad leikvangurinn, heimavöllur Man City.

Etihad leikvangurinn, heimavöllur Man City.

Canon

Mynd: EPA

Enska fótboltasambandið hefur gefið frá sér yfirlýsingu og segir dóminn yfir Manchester City hafa veruleg áhrif á heilindi fótboltans.

„Við erum að skoða dóminn og afleiðingar hans vandlega og munum grípa til aðgerða eftir því sem við á," segir í yfirlýsingunni sem kemur í kjölfar þess að á þriðjudag var staðfest að óháð nefnd ensku úrvalsdeildarinnar hefði dæmt Manchester City sekt um fjölda alvarlegra fjárhagsbrota.
Gervisamningar fyrir 900 milljónir punda
TENGT EFNI

Gervisamningar fyrir 900 milljónir punda

City hefur ítrekað neitað sök og hefur út daginn til að áfrýja niðurstöðunni.

„Þar sem málið milli ensku úrvalsdeildarinnar og fótboltafélagsins Manchester City er enn í gangi ætlum við ekki að tjá okkur frekar á þessu stigi. Við munum hins vegar halda áfram að fylgjast náið með þróun mála,“ bætti enska sambandið við.

Breska ríkisútvarpið segir að City muni í vörn sinni halda því fram að lykilstyrktarsamningar væru fjármagnaðir af stjórnvöldum í Abú Dabí en ekki eigendum félagsins.

Í dómnum kemur fram að City hafi gert gervisamninga við fjölda viðskiptafélaga sem hluti af áætlun til að dylja leynilega fjármögnun. Þar segir segir að City hafi kerfisbundið brotið úrvalsdeildarreglur í næstum áratug.

Hvað verður um Man City?

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.