02.10.26 - 10:28
Elvar Geir Magnússon
Sylvinho tekur við eftir leikina gegn Íslandi og Lúxemborg

Sylvinho tekur við búlgarska landsliðinu.

Mynd: EPA

Brasilíumaðurinn Sylvinho, sem lék meðal annars fyrir Arsenal, Barcelona, Manchester City og brasilíska landsliðið á ferli sínum sem vinstri bakvörður, verður næsti þjálfari Búlgaríu.
Búlgarskir fjölmiðlar segja að hann muni taka við liðinu eftir þennan glugga, Búlgaría mætir Íslandi á Laugardalsvelli á morgun og leikur svo gegn Lúxemborg á þriðjudag.

TENGT EFNI
Ljóst hver stýrir Búlgaríu á Laugardalsvelli
Bráðabirgðaþjálfarinn Atanas Ribarski mun stýra Búlgaríu í næstu tveimur leikjum. Hann tekur við tímabundið af Alexander Dimitrov sem sagði upp eftir tap gegn Lúxemborg og jafntefli gegn Eistlandi.
Sylvinho er fyrrum þjálfari albanska landsliðsins og stýrði liðinu á síðasta Evrópumóti. Hann hefur einnig þjálfað Lille í Frakklandi og Corinthians í Brasilíu.
Eftir að Dimitrov sagði upp var strax ljóst að búlgarska sambandið vildi ráða erlendan þjálfara til að taka við.