02.10.26 - 10:48
Elvar Geir Magnússon
Óðinn Bjarka heim í KR (Staðfest)

Óðinn Bjarkason í KR-treyjunni.

Mynd: KR

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óðinn Bjarkason í KR-treyjunni.

Mynd: KR
Óðinn Bjarkason hefur skrifað undir þriggja ára samning við KR en félagið kaupir hann frá Aftureldingu.
Óðinn, sem er tvítugur kantmaður, var lykilmaður í liði Aftureldingar sem vann Lengjudeildina á nýafstöðnu tímabili. Hann skoraði fjórtán mörk í 21 leik og var valinn í lið tímabilsins hér á Fótbolta.net.
Óðinn er uppalinn hjá KR en lék með ÍR að láni tímabilið 2025. Síðasta vetur gekk hann síðan til liðs við Aftureldingu, sem keypti hann frá KR.

TENGT EFNI
Lið ársins og bestu menn í Lengjudeildinni 2026
„Við bjóðum Óðinn velkominn heim og hlökkum til að fylgjast með honum vaxa og dafna í KR-treyjunni á næstu árum," segir í tilkynningu KR.
Óðinn tók miklum framförum á tíma sínum hjá Aftureldingu og á samfélagsmiðlum Mosfellinga er vitnað í leikmanninn.
„Takk fyrir mig, Mosó. Ég kveð Aftureldingu eftir frábært tímabil innan sem utan vallar. Deildarmeistaratitillinn og bikarævintýrið eru eitthvað sem verður erfitt að gleyma. Frábært bæjarfélag með geggjaða stuðningsmenn, sérstaklega Listapúkann Þóri og Gunnar Listaskrímsli," segir Óðinn.
„Spennandi tímar eru fram undan hjá Aftureldingu í Bestu deildinni og ég hlakka mikið til að fylgjast með. Þakkir til stjórnarinnar og allra sem komu að. Að lokum vil ég færa þjálfarateyminu sérstakar þakkir fyrir að hafa hjálpað mér gríðarlega að þróast sem leikmaður, gefið mér tækifæri og alltaf haft trú á mér!"

Óðinn fagnar marki með Aftureldingu.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson