Katastrófa að tapa gegn Búlgaríu?


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson


Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Ísland mætir Búlgaríu á morgun í Þjóðadeildinni en Búlgarar eru nýbúnir að skipta um þjálfara. Þeir hafa farið afskaplega illa af stað í keppninni þar sem þeir töpuðu fyrir Lúxemborg í fyrsta leik og gerðu síðan jafntefli gegn Eistlandi.
Arnar Gunnlaugsson landsliðsþjálfari telur það mikilvægt að ná í góð úrslit gegn þeim, en hann var spurður á fréttamannafundi hvort það yrðir katastrófa ef Ísland tapaði fyrir þeim á morgun.
„Persónuleg katastrófa? Já. Við verðum líka bara að bera virðingu fyrir þessu landsliðs umhverfi, þetta er töff bransi. Þó að Búlgarar hafa verið á niðurleið síðustu árin þá eru margir góðir leikmenn þarna sem geta meitt okkur. Ég held að hugarfar leikmanna skiptir máli að vera ekki og miklir töffarar og vera ekki að vanmeta lið Búlgara. Ég held líka með svona þjálfaraskipti, það getur brugðið til beggja vonar hvernig sem fer, en ef við mætum þeim að hörku fyrstu mínúturnar, náum að þvinga þá niður. Þá er reynslan mín í þessum bransa að þeir munu brotna fyrr en ella," sagði Arnar.
Þá er Arnar einnig að treysta á mikinn og góðan stuðning frá stúkunni. Í dag eru um 4000 miðar búnir að seljast, en það má búast við að það mun aukast á leikdegi.
„Menn eru alltaf að bíða eftir hvernig veðurspáin verður en ég var hrikalega ánægður með mætinguna gegn Eistlandi. Ég held það verður stemning á leiknum. Það er auðvitað undir okkur komið að gíra upp stemninguna fyrir áhorfendur með góðum og kraftmiklum leik. Ég held að fólkið okkar skynji það að við þurfum virkilega á þeim að halda. Menn eru ekki beint eitthvað örmagna en menn eru smá laskaðir og þreyttir og líka leikmenn Búlgaranna. Þannig ég held að þeir þurfi það að við erum saman í þessu og þá getum við átt góðan dag," sagði Arnar
