Fotbolti.net
05.07.26 - 12:02
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Klopp tekur við þýska landsliðinu

Klopp tekur við þýska landsliðinu
Canon

Mynd: EPA

Fabrizio Romano greinir frá því að það sé allt klappað og klárt og Jurgen Klopp verður næsti landsliðsþjálfari Þýskalands.

Klopp staðfesti á dögunum að hann væri í viðræðum eftir að Julian Nagelsmann sagði af sér.
Nagelsmann sagði af sér eftir gríðarleg vonbrigði á HM. Þýskaland féll úr leik eftir tap gegn Paragvæ í vítaspyrnukeppni í 32-liða úrslitum.

Klopp er yfirmaður fótboltamála hjá Red Bull samsteypunni en þeir vildu fá Oliver Glasner til að taka við af Klopp. Það er hins vegar útlit fyrir það að hann taki við Nottingham Forest.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.