Fotbolti.net
04.07.26 - 20:00
Andri Stefánsson

Brynjar Björn: Svekkjandi að missa niður 3–2 forystu

Auglýsing
Brynjar Björn þjálfari Leiknis

Brynjar Björn þjálfari Leiknis

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Lengjudeildin
Leiknir og Völsungur gerðu 3-3 jafntefli í æsispennandi leik. Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Brynjar Björn þjálfara Leiknis eftir svekkjandi jafntefli.
Spurður um fyrstu viðbrögð eftir að hafa misst niður 3–2 forystu:

„Já, eins og ég segi, bara svekkjandi úrslit, sérstaklega eftir að vera búnir að komast yfir. Bara okkur sjálfum að kenna að einhverju leyti. Halda aðeins betur í boltann, hreinsa á réttum tíma og berjast aðeins meira fyrir okkar mönnum á vellinum. Við erum bara aðeins undir þar.

Eins og þessi deild er, þá eru allir leikir erfiðir og við fáum jafntefli hér. Auðvitað vildum við fá þrjú stig, en við verðum bara að sætta okkur við stigið.“

Spurður um hvort umspilssæti sé raunhæfur möguleiki:

„Já, já. Þetta er rétt fyrsti leikurinn í seinni umferðinni, þannig að það er nóg eftir. Við eigum aftur leik eftir tvær vikur og erum heilt yfir búnir að spila þokkalega í fyrri hlutanum. Við þurfum bara að bæta okkur aðeins.“

Spurður um möguleg leikmannakaup í félagaskiptaglugganum:

„Ekki eins og er. Við erum alltaf að skoða í kringum okkur og ef við erum að horfa til umspilsins þá væri eðlilegt að styrkjast.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.