Fotbolti.net
04.07.26 - 20:18
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Chris Brazell: Þetta hefur verið mjög erfið vika

Auglýsing
Chris Brazell: Þetta hefur verið mjög erfið vika
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Chris Brazell stýrði Val í fyrsta sinn í dag eftir að Hermann Hreiðarsson var látinn taka pokann sinn. Valur tapaði gegn ÍBV í Eyjum. Fótbolti.net ræddi við Chris Brazell eftir leikinn.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 0 Valur
„Ég leit ekki á þetta sem fyrsti leikurinn minn sem aðalþjálfari. Þetta hefur verið mjög erfið vika. Ég tók mikinn þátt með þjálfarateyminu síðustu sex mánuði. Við Hemmi (Hreiðarsson) höfum átt gott samband og eigum enn," sagði Brazell.

„Fréttamaður spurði hvort ég væri spenntur fyrir þessum leik. Ég sá þetta ekki svoleiðis, ég var bara að vinna mína vinnu. Auðvitað er ég svekktur að hafa tapað. Aðalatriðið fyrir mig var að styðja leikmennina, vera fulltrúi félagsins á réttan hátt. Eftir erfiða viku gerði starfsfólkið og leikmennirnir þetta vel."

„Rauða spjaldið breytti leiknum, verðið hafði líka sitt að segja. ÍBV gat pressað mikið í fyrri hálfleik en við gátum það meira í seinni hálfleik. Það er mikil árásargirni í ÍBV liðinu, pressa mikið og eru hugrakkir. Ég verð að segja að þeir gerðu vel, allir sem sáu leikinn munu segja að við gerðum margt gott á köflum, þetta var jafn leikur fram að rauða spjaldinu. Hamingjuóskir til ÍBV," sagði Brazell.

„Ég hef lært mína lexíu. Ég komst hjá því að hugsa um dómarana, mitt hlutverk er að vera fulltrúi félagsins og styðja leikmennina. Ég hef ekki séð rauða spjaldið. Hólmar er hágæða fagmaður, ég get ekki beðið um betri leiðtoga í klefann. Hann fer ekki í leiki með það að markmiði að fá rautt spjald. Allt sem hefði getað farið úrskeðis fór úrskeðis í þessari viku og þetta var rúsínan í pylsuendanum," sagði Brazell.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.