Fotbolti.net
04.07.26 - 23:06
Jóhann Þór Hólmgrímsson

HM: Frakkland náði að brjóta þvílíkan varnarmúr Paragvæ

HM: Frakkland náði að brjóta þvílíkan varnarmúr Paragvæ
Canon

Mynd: EPA

Paragvæ 0 - 1 Frakkland
0-1 Kylian Mbappe ('70 , víti)
Frakkland er komið í 8-liða úrslit á HM eftir nauman sigur á Paragvæ í kvöld.

Paragvæ gerði sér lítið fyrir og sló Þýskaland úr leik í 32-liða úrslitum. Liðið mætti síðan Frökkum í kvöld.

Paragvæ varðist mjög lágt á vellinum og Frakkar komust hvorki lönd né strönd.

Kylian Mbappe náði að sleppa í gegn í upphafi seinni hálfleiks eftir frábæra sendingu frá markverðinum Mike Maignan fram völlinn. Hann var hins vegar aðeins of lengi að athafna sig og Juan Caceres kom boltanum frá á síðustu stundu.

Orlando varði síðan frábærlega langskot frá Manu Kone.

Frakkar fengu síðan vítaspyrnu þegar Desire Doue féll í teignum eftir að hann var nýkominn inn á sem varamaður. Mbappe skoraði úr spyrnunni og kom Frökkum yfir.

Fleiri mörk voru ekki skoruð og Frakkland er komið í 8-liða úrslitin þar sem liðið mætir Marokkó.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.