Fotbolti.net
04.07.26 - 19:39
Andri Stefánsson

Borja: Ákváðum að Tommi væri besti kosturinn til að standa í markinu

Auglýsing
Borja Martin Þjálfari Völsungs

Borja Martin Þjálfari Völsungs

Canon

Mynd: Völsungur

Lengjudeildin
Leiknir og Völsungur gerðu 3-3 jafntefli í æsispennandi leik. Fótbolti.net var á staðnum og ræddi við Borja Martin þjálfara Völsungs eftir mikilvægt stig.
Lestu um leikinn: Leiknir R. 3 - 3 Völsungur
Spurður um fyrstu viðbrögð eftir leik:

Fyrstu viðbrögðin eru góð. Þetta er mjög mikilvægt stig. Við byrjuðum leikinn vel og komumst yfir, en það er gríðarlega erfitt að spila nær allan leikinn án markvarðar. Það setti okkur í mjög erfiða stöðu. Allur hópurinn sýndi mikinn karakter inni á vellinum og ég er virkilega ánægður með þetta stig.“

Jochum meiddist og þá þurfti útileikmaður að fara í markið. Hversu erfitt var það?

Við erum lið, bæði þegar vel gengur og þegar á móti blæs. Eftir samtal ákváðum við ásamt Tomma að hann væri besti kosturinn til að standa í markinu það sem eftir lifði leiks.“

Tímabilið hefur verið erfitt. Mega stuðningsmenn búast við liðsstyrk í félagaskiptaglugganum?

„Já, við erum að skoða möguleika á að styrkja hópinn. Það er þó ekki einfalt miðað við stöðu félagsins. Við erum að vinna í ýmsum lausnum en á þessari stundu get ég ekki sagt meira.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.