05.07.26
Víkingur aldrei verið sterkari samkvæmt landsliðsþjálfaranum - Ungverskir miðlar fjalla um einvígið
ÍVAR BJÖRGVINSSON
Á þriðjudaginn næstkomandi hefja Víkingar leik í forkeppni Meistaradeildar Evrópu þar sem þeir taka á móti ungversku meisturunum frá Györ. Fyrri leikurinn verður spilaður á Víkingsvellinum þann 7. Júlí og sá síðari fer fram viku síðar í Ungverjalandi. Þrátt fyrir að Víkingur hafi verið í efri styrkleikaflokki í drættinum vegna góðs gengis síðustu ár í Evrópuleikjum, fékk liðið gífurlega erfiðan drátt en ETO Györ var sterkasti mögulegi andstæðingurinn sem bauðst. Því er ljóst að Víkingur er að fara í erfitt verkefni þar sem virkilega mikið er í húfi, sigur í einvíginu þýðir að liðið fer í 2. umferð í forkeppni Meistaradeildarinnar og er þar með búið að tryggja sér að lágmarki úrslitaeinvígi að komast í Sambandsdeildina. Tap þýðir hins vegar að liðið fari beint í 2. umferð í forkeppni Sambandsdeildar og þurfi þar að vinna þrjú einvígi til að fá að taka þátt í Sambandsdeildinni í annað sinn í sögu félagsins. Heyrt var í landsliðsþjálfara Íslands og fyrrum þjálfara Víkings, Arnari Gunnlaugssyni, en einnig var staðan tekin á ungversku fréttamiðlunum og fyrrum ungverskum fótboltamanni í einstaklega góðri upphitun fyrir áskrifendur fyrir leikinn.





