Fotbolti.net
04.07.26 - 20:52
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Linta: Banna þeim að hafa of gaman

Auglýsing
Linta: Banna þeim að hafa of gaman
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍBV er taplaust í síðustu sex leikjum eftir sigur á Val í dag. Fótbolti.net ræddi við Aleksandar Linta, þjálfara ÍBV, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: ÍBV 1 - 0 Valur
„Maður sá að þetta var mikilvægur leikur fyrir bæði lið. Mikil spenna og slagur. Við hefðum getað verið betri í ákveðnum þáttum en pressan og skyndisóknir voru góðar. Við hefðum getað verið aðeins betri með boltann. Með smá ró náðum við að búa til markið," sagði Linta.

ÍBV hefur verið á frábæru skriði eftir erfiða byrjun. Leikmenn og stuðningsmenn liðsins eru farnir að njóta sín í botn.

„Þetta er stressandi vinna en til að ná sínu besta fram verða leikmenn að njóta sín. Ég banna þeim að hafa of gaman en ég krefst þess að menn njóti sín. Þegar þeir njóta sín eru þeir með meiri orku," sagði Linta.

Það var mikilvægt að ná að vinna á Goslokahelginni.

„Það var líka ein af ástæðunum fyrir því að við vildum vinna," sagði Linta.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.