Útileikmaður fór í markið en Völsungur náði samt stigi

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Jochum Magnússon, markvörður Völsungs, þurfti að fara af velli vegna meiðsla í hálfleik þegar liðið mætti Leikni í Lengjudeildinni í dag.
Jochum virtist meiðast illa en hann var kominn á hækjur eftir leik.

Lestu um leikinn: Leiknir R. 3 - 3 Völsungur
Það var enginn varamarkvörður til staðar en Tómas Bjarni Baldursson fór í markið.
„Við erum lið, bæði þegar vel gengur og þegar á móti blæs. Eftir samtal ákváðum við ásamt Tomma að hann væri besti kosturinn til að standa í markinu það sem eftir lifði leiks," sagði Borja Martin, þjálfari Völsungs, eftir leikinn.
Staðan var 1-1 í hálfleik en leiknum lauk með 3-3 jafntefli. Þrátt fyrir að fá á sig tvö stóð Tómas sig mjög vel í markinu og varði nokkrum sinnum vel.

Borja: Ákváðum að Tommi væri besti kosturinn til að standa í markinu

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson