Fotbolti.net
05.07.26 - 12:59
Runólfur Trausti Þórhallsson

Yfirþjálfari yngri flokka Stjörnunnar lætur af störfum

Páll hefur látið af störfum í Garðabænum.

Páll hefur látið af störfum í Garðabænum.

Canon

Mynd: Aðsend

Páll Árnason, yfirþjálfari yngri flokka Stjörnunnar, lætur af störfum eftir sex ára starf hjá félaginu.
Á sínum sex árum í Garðabænum stýrði Páll uppbyggingu yngri flokka Stjörnunnar, kom að þjálfun flestra aldursflokka ásamt því að leiða stefnumótun og þróun yngri flokka starfs félagsins.

Páll, sem verður fertugur á árinu, hefur yfir tveggja áratuga reynslu af þjálfun, kennslu og stjórnunarstörfum innan íslenskrar knattspyrnu. Ásamt því að starfa fyrir Stjörnuna hefur Páll starfað fyrir Fjölni, KR, Val, KA og FH.

Þá hefur hann starfað sem kennari og leiðbeinandi hjá KSÍ, Knattspyrnusambandi Íslands. Ofan á það lauk hann meistaragráðu í Fótboltafræðum (e. Football Business) frá Johan Cruyff Institute í Barcelona árið 2024.

Að svo stöddu er ekki vitað hvert næsta skref Páls er.
Farið yfir afreksstarf.

Farið yfir afreksstarf.

Canon

Mynd: Aðsend

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.