Fotbolti.net
04.07.26 - 14:00
Kári Snorrason

Amin ræðir skrefið út - „Á bekknum í Njarðvík og hugsaði að þetta væri algjört klúður“

Auglýsing
Heldur út á morgun.

Heldur út á morgun.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Maður getur ekki beðið og hugsað hvenær maður er tilbúinn eða ekki tilbúinn. Maður verður bara að kýla á þetta,“ segir Amin Cosic sem er á leið frá KR og út í atvinnumennsku.

Fótbolti.net hitti á Amin fyrr í dag og ræddi við hann um skrefið í atvinnumennsku en hann heldur út á morgun. Amin gat þó ekki tilkynnt um til hvaða liðs hann væri að fara en greint hefur verið frá því að hann sé að ganga í raðir norsku meistaranna í Viking Stavanger.
Síðasti dans Amins með KR á morgun
TENGT EFNI

Síðasti dans Amins með KR á morgun

Stutt á milli
„Maður verður að kýla á þetta eins og ég gerði hjá KR. Ég kom frá Njarðvík sem einhver nítján ára gutti. Ég sýndi mig hjá Njarðvík og fór í KR. Það var smá brekka fyrst, erfiðara en í Lengjudeildinni. En ég lagði inn vinnuna og þetta skilaði sér.“

Uppgangur Amins hefur verið snöggur. Aðeins þrjú ár eru síðan hann leitaði sér að liði til þess að æfa með. Í kjölfarið gekk hann í raðir Njarðvíkur frá uppeldisfélaginu HK.

„Þetta gerist mjög hratt. Það er mjög stutt á milli í þessu. Gunnar Heiðar, sem var að þjálfa mig í Njarðvík á þessum tíma, sagði við mig þegar ég var á bekknum í Njarðvík að það væri mjög stutt á milli í þessu og stutt í að maður færi lengra.

Maður var bara heyrðu – stutt á milli? Ég var á bekknum í Njarðvík og hugsaði að þetta væri algjört klúður. En það er mjög stutt á milli ef maður leggur inn vinnuna og er með einbeitingu allan tímann.“


Seldur fyrir metfé
Aðspurður um hvort hann hafi getað valið um lið segir Amin nokkur félög hafa verið á eftir sér. „En það var eitt félag sem kom með hæsta tilboð í sögunni. Þannig það var ekkert mikið hægt að velja.

„En þetta er toppklúbbur sem ég er að fara í. Ég hlakka mjög mikið til að fara þangað. Ég hefði líklegast valið þennan klúbb þó svo að þetta hefði ekki verið svona hátt tilboð.“


Verðmiðinn á Amin er sagður vera um 80 milljónir króna. Skyldi það vera rétt væri hann dýrasti leikmaður sem keyptur hefur verið frá Íslandi.

Kitlar það að heyra að þú sért að fara á metfé?
„Það er alveg stórt. Maður hugsaði fyrir tímabil að maður vildi fara út og eiginlega bara það að fara út. En svo þegar maður heyrir að maður sé að fara verða dýrastur í sögunni þá fattar maður að þetta sé stórt.“

„Ég er ekki alveg búinn að fatta hversu stórt þetta er. Ég held að maður muni átta sig á því þegar það koma fleiri fréttir og þegar maður er farinn út. Það er engin pressa á mér þannig séð, ég er bara rólegur.“


Amin ræðir sömuleiðis um pabba sinn, Almir Cosic, og hvernig hann hefur hjálpað sér. Almir lék með HK og Leikni F. á Íslandi. Hann spilaði jafnframt með Zeljeznicar í Bosníu áður en hann hélt til Íslands og lék með þeim í Evrópukeppni.

Í einum Evrópuleik árið 2002 mætti liðið Newcastle og hrifust þeir ensku af Almir og lögðu fram milljón punda tilboð í hann eftir leikinn en tilboðinu var hafnað af Zeljeznicar.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Skorað fjögur mörk og lagt upp eitt í Bestu deildinni á tímablinu.

Skorað fjögur mörk og lagt upp eitt í Bestu deildinni á tímablinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fór til Njarðvík frá uppeldisfélaginu HK 2024.

Fór til Njarðvík frá uppeldisfélaginu HK 2024.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég var á bekknum í Njarðvík og hugsaði að þetta væri algjört klúður.“

„Ég var á bekknum í Njarðvík og hugsaði að þetta væri algjört klúður.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Amin ræðir skrefið út - „Á bekknum í Njarðvík og hugsaði að þetta væri algjört klúður“
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Almir í baráttunni við Tryggva Guðmundsson.

Almir í baráttunni við Tryggva Guðmundsson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.