Fotbolti.net
05.07.26 - 07:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Paragvæ fær harða gagnrýni - „Voru sér til skammar"

Paragvæ fær harða gagnrýni - „Voru sér til skammar"
Canon

Mynd: EPA

Paragvæ er úr leik á HM eftir tap gegn Frakklandi í 16-liða úrslitum í gær.

Liðið kom flestum á óvart þegar það sló Þýskaland úr leik í 32-liða úrslitum eftir vítaspyrnukeppni
Paragvæ hefur fengið harða gagnrýni fyrir frammistöðu sína gegn Frakklandi en markmiðið virtist bara vera að fá ekki á sig mark.

Varnarmúrinn var þéttur en þrátt fyrir það þá fékk Paragvæ ekki neitt spjald. Frakkar fengu þrjú spjöld.

„Leikmenn Paragvæ voru sér til skammar. Ef þeir væru í mínu liði hefði ég dregið þá af velli," sagði Joe Hart, fyrrum markvörður enska landsliðsins og sérfræðingur á BBC.

„Það var vandræðalegt að horfa á þetta. Paragvæ er betra en þetta," sagði Micah Richards hjá BBC.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.