Isak, Tuchel, Sesko, Amorim, Rabiot, Branthwaite og fleiri góðir í slúðrinu í dag
   mán 05. október 2020 21:50
Ívan Guðjón Baldursson
Kári Steinn skrifar undir samning við Aftureldingu
Lengjudeildin
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kári Steinn Hlífarsson er búinn að skrifa undir nýjan tveggja ára samning við Aftureldingu eftir gott sumar í Lengjudeildinni.

Kári Steinn er búinn að gera sjö mörk í deildinni og mikilvægt fyrir Mosfellinga að halda einum af sínum bestu mönnum.

Kári er fæddur 1999 og hefur bætt leik sinn mikið á milli ára en í fyrra spilaði hann 6 leiki fyrir Aftureldingu án þess að skora mark. Þar áður spilaði hann með KFG í 3. deildinni.

Afturelding er með 25 stig eftir 20 umferðir í Lengjudeildinni, 13 stigum fyrir ofan fallsvæðið.

Athugasemdir
banner
banner
banner
banner