29.11.26 - 15:15
Brynjar Ingi Erluson
„Vonsvikinn með frammistöðuna“

Virgil van Dijk var hvorki sáttur við frammistöðuna né úrslitin

Mynd: EPA

Virgil van Dijk, fyrirliði Liverpool, var vonsvikinn með frammistöðu liðsins í 1-1 jafnteflinu gegn Everton í dag.

TENGT EFNI
Iraola: Þetta eru ekki góð úrslit fyrir okkur
Hollendingurinn var ánægður með byrjun Liverpool, en Dominik Szoboszlai kom liðinu yfir snemma leiks. Honum fannst hins vegar samherjar sínir slaka of mikið á eftir markið.
„Ég er svolítið vonsvikinn með frammistöðuna í heild sinni. Við skoruðum mjög gott mark snemma leiks en urðum svolítið kærulausir eftir það. Við sköpuðum nóg af færum til að vinna leikinn en tókst það ekki. Nú þurfum við að jafna okkur og mæta sterkari til leiks næst.“
Van Dijk var ekki sáttur við að Liverpool skyldi aðeins fá eitt stig úr grannaslagnum, sérstaklega í ljósi þess að liðið fékk nokkur góð tækifæri til að tryggja sér sigurinn.
„Þeir vörðust vel. Við fórum að senda allt of margar fyrirgjafir inn í teiginn og það var ekki rétta leiðin. Maður reynir auðvitað að setja pressu á andstæðinginn og knýja fram sigurmarkið, en þeir vörðust mjög vel. Við töpuðum tveimur stigum og það er gríðarlega svekkjandi.“
Hann segir að það fylgi alltaf mikil spenna og pressa þessum grannaslag, enda sé Everton erfiður andstæðingur á heimavelli.
„Ég hef spilað marga leiki gegn þeim og þeir eru alltaf erfiðir. Þeir gera okkur lífið leitt og það var ekkert öðruvísi í dag. Stuðningsmennirnir eiga líka stóran þátt í því hvernig Everton spilar í þessum leikjum. Það er frábært að fá að taka þátt í svona grannaslag og ég hef verið svo heppinn að fagna góðum árangri í flestum þeirra,“ sagði fyrirliðinn eftir leikinn.
Liverpool er í 4. sæti deildarinnar með 22 stig, sex stigum frá toppnum.