29.11.26 - 15:25
Brynjar Ingi Erluson
Tileinkaði GTA 6-persónu markið

Marcus Thuram

Mynd: EPA

Marcus Thuram

Mynd: EPA
Milljónir manna um allan heim hafa sökkt sér í nýjasta Grand Theft Auto-leikinn frá Rockstar Games og eru fótboltamenn þar engin undantekning. Einn þeirra gekk þó skrefinu lengra í gær þegar hann tileinkaði persónu úr leiknum mark sem hann skoraði.
Franski sóknarmaðurinn Marcus Thuram er einn þeirra sem hefur sökkt sér í GTA 6 að undanförnu.
Hann skoraði tvennu fyrir Inter í 4-0 sigrinum á Mikael Agli Ellertssyni og félögum í Genoa í gær, en ákvað að tileinka mörkin heldur óvenjulegri manneskju.
Þar er um að ræða Luciu, aðra af tveimur aðalpersónum GTA 6, sem virðist hafa heillað Frakkann upp úr skónum.
Lucia og Jason eru nokkurs konar nútímaútgáfa af Bonnie og Clyde og ganga í gegnum súrt og sætt saman í leiknum. Spilarar geta meðal annars þróað rómantískt samband við Luciu og er Thuram einn þeirra sem hefur valið þá leið.
Thuram virðist greinilega bera sterkar tilfinningar til Luciu, svo sterkar að hann ákvað að tileinka henni mörkin tvö, eins og sjá má í færslunni hér fyrir neðan.

Marcus Thuram dedicated a celebration to Grand Theft Auto character Lucia yesterday ????
— Match of the Day (@BBCMOTD) November 29, 2026
The Inter Milan striker wrote on his Instagram story 'Lucia ??' and tagged Rockstar Games ???? https://t.co/19UxN64ytn