29.11.26 - 16:15
Brynjar Ingi Erluson
Sirius Svíþjóðarmeistari í fyrsta sinn eftir mikla dramatík - Júlli Magg á skotskónum

Sirius er Svíþjóðarmeistari í fyrsta sinn í sögu félagsins

Mynd: Sirius

Júlli Magg skoraði fyrir Elfsborg

Mynd: Elfsborg

Sirius tryggði sér sænska meistaratitilinn í fyrsta sinn í sögu félagsins eftir hádramatíska lokaumferð í dag.
Á síðasta ári kom Mjällby öllum á óvart með því að vinna bæði sænsku úrvalsdeildina og bikarkeppnina, en það voru fyrstu stóru titlarnir í sögu félagsins.
Í ár var komið að Sirius að koma stórliðunum í opna skjöldu, en liðið sat lengi vel á toppi deildarinnar áður en Hammarby fór að veita því harða samkeppni.
Fyrir lokaumferðina var staðan þannig að Sirius þurfti að vinna sinn leik gegn Gautaborg og treysta um leið á að Hammarby myndi tapa eða gera jafntefli við Västerås.
Líkurnar voru ekki með Sirius, en liðinu tókst að knýja fram dramatískan 1-0 sigur á Gautaborg. Hjörtur Hermannsson var í byrjunarliði Gautaborgar og Kolbeinn Þórðarson kom inn af bekknum.
Sigurmark Sirius kom undir lok leiksins og þar með hafði liðið gert sitt. Þá tók við taugatrekkjandi bið eftir úrslitunum úr leik Hammarby og Västerås.
Þar höfðu leikmenn Västerås komið verulega á óvart með því að ná forystunni eftir aðeins 21 mínútu. Hammarby reyndi hvað það gat að jafna metin og tryggja sér titilinn, en allt kom fyrir ekki og Västerås fagnaði óvæntum 1-0 sigri.
Sirius stóð því uppi sem sænskur meistari í fyrsta sinn í sögu félagsins. Algjört ævintýri hjá liðinu sem hafði komið flestum á óvart með frábærri frammistöðu á tímabilinu.
Daníel Tristan Guðjohnsen kom þá inn af bekknum hjá Malmö, sem gerði 1-1 jafntefli við Brommapojkarna. Malmö lauk tímabilinu í áttunda sæti með 43 stig.
Júlíus Magnússon bjargaði hins vegar stigi fyrir Elfsborg í 1-1 jafntefli gegn GAIS, en hann skoraði jöfnunarmarkið úr vítaspyrnu á 85. mínútu. Ari Sigurpálsson hafði komið inn af bekknum nokkrum mínútum áður.
Elfsborg hafnaði í sjötta sæti deildarinnar með 47 stig, þremur stigum meira en GAIS.

???? IK Sirius från Uppsala - Svenska Mästare 2026! ???????? https://t.co/t8sEr5NFGW
— IK Sirius Fotboll (@siriusfotboll) November 29, 2026

Júlli Magg skoraði fyrir Elfsborg

Mynd: Elfsborg