29.11.26 - 14:55
Brynjar Ingi Erluson
Moyes: Áttum svo sannarlega skilið að fá eitthvað út úr þessum leik

Mynd: EPA

Mynd: EPA
„Ég er ánægður með að fá stig út úr þessum leik. Liverpool er á góðu skriði og við vissum að þetta yrði erfitt,“ sagði David Moyes, stjóri Everton, eftir 1-1 jafnteflið gegn erkifjendunum í Liverpool í dag.

TENGT EFNI
Einkunnir úr grannaslagnum: Tveir Everton-menn fá 8 - Frimpong slakastur
Everton steinlá 4-0 fyrir Brentford á mánudaginn, en leikmenn liðsins sýndu allt aðrar hliðar á sér í grannaslagnum gegn Liverpool í dag.
Heimamenn lentu vissulega undir strax á fyrstu mínútum leiksins, en létu það ekki slá sig út af laginu og komu til baka með góðri frammistöðu gegn sterku liði Liverpool.
„Við gerðum margt gott í dag sem við gerðum ekki á mánudaginn og stuðningsmennirnir áttu stóran þátt í því. Við áttum svo sannarlega skilið að fá eitthvað út úr þessum leik.“
„Eftir tapið á mánudaginn og að lenda undir eftir aðeins fjórar mínútur sýndu strákarnir mikinn karakter. Þeir héldu áfram að berjast, gáfu ekkert eftir og unnu sig aftur inn í leikinn. Við vorum líka mjög góðir varnarlega.“
Jack Grealish sneri aftur í byrjunarliðið, en þetta var í fyrsta sinn sem hann byrjaði leik síðan hann braut agareglur félagsins. Moyes var ánægður með frammistöðu hans, sem og þeirra Hayden Hackney og Kiernan Dewsbury-Hall.
„Jack spilaði mjög vel og það gerði Hayden líka. Ég er með frekar lítinn hóp og þarf að nýta þá leikmenn sem ég hef. Strákarnir sem komu inn í liðið í dag stóðu sig frábærlega.“
„Ég verð líka að hrósa Kiernan sérstaklega. Hann hefur verið alveg stórkostlegur og átti enn einn frábæran leik í dag. Hann heldur áfram að standa sig vel og vonandi tekst okkur að halda því áfram,“ sagði Moyes í lokin.