Fotbolti.net
06.03.21 - 10:40
Elvar Geir Magnússon

Líkleg byrjunarlið Liverpool og Fulham

Leikurinn er klukkan 14 á sunnudag

Líkleg byrjunarlið Liverpool og Fulham
Canon

Mynd: Guardian

Klukkan 14 á morgun, sunnudag, leikur Liverpool gegn Fulham á Anfield. Liverpool hefur verið mikil vonbrigði á tímabilinu og Fulham er í fallsæti.



Ozan Kabak er að glíma við meiðsli og verður ólíklega í vörn Liverpool. Guardian er með Fabinho og Nathaniel Phillips saman í miðverði í líklegu byrjunarliði.

Mohamed Salah var tekinn af velli í tapleiknum gegn Chelsea en hann er klár í slaginn.
Það hefur enginn bæst á meiðslalista Fulham en Tom Cairney er enn fjarri góðu gamni.

Þegar Fulham og Liverpool léku á Craven Cottage í desember endaði viðureignin með jafntefli 1-1.

Fulham hefur einu sinni unnið deildarleik gegn Liverpool en það var 2012 þegar sjálfsmark Martin Skrtel réði úrslitum.

Heimild: Guardian

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Man City8+1121
2Arsenal8+821
3Brighton8+1616
4Liverpool8+315
5Chelsea8+213
6Brentford8+511
7Leeds8+311
8Newcastle8-211
9Aston Villa8-311
10Hull City8+110
11Everton8-110
12Ipswich Town8-410
13Bournemouth8-19
14Tottenham8-29
15Fulham8-28
16Man Utd8-37
17Crystal Palace8-107
18Nott. Forest8-46
19Coventry8-96
20Sunderland8-85
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.