Fotbolti.net
06.06.21 - 15:40
Aksentije Milisic

Fofana sást í Arsenal treyju - Stuðningsmenn ekki sáttir

Fofana sást í Arsenal treyju - Stuðningsmenn ekki sáttir
Canon

Mynd: Getty Images

Wesley Fofana, leikmaður Leicester City, stóð sig frábærlega hjá félaginu í vetur en hann var keyptur frá Saint Etienne í Frakklandi. Í kjöfarið hefur hann strax verið orðaður við stærri félög.
Hann lenti hins vegar í brasi nú á dögunum. Fofana er í sumarfríi í Dubai og það fór af stað mynd af honum á samskiptamiðlum þar sem leikmaðurinn sést í Arsenal treyju.

Stuðningsmenn Leicester City urðu ekki sáttir með þetta á Twitter. Þegar Fofana sá að þessi mynd fór á netið þá var hann fljótur að senda skilaboð.

„Það voru nokkrir vinir mínir sem plötuðu mig í það að fara í treyjuna. Við spiluðum leik og í lokin skiptumst við á treyjum. Ég hafði ekki hugmynd um að þessi mynd myndi enda á netinu," sagði Wesley Fofana.

„Ég er reiður út í vini mína fyrir að hafa látið mig líta illa út."

Ekki er talið líklegt að Leicester selji þennan efnilega leikmann í sumar en hann er með samning til ársins 2025.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.