01.10.26 - 13:30
Ívan Guðjón Baldursson
„Gætuð byrjað að gagnrýna mig hvenær sem er"

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Spænska ungstirnið Lamine Yamal fór á kostum í 4-1 sigri heims- og Evrópumeistara Spánverja gegn Króatíu í Þjóðadeildinni á dögunum.

TENGT EFNI
Einkunnir kvöldsins: Yamal með fullt hús - Gordon bestur hjá Englendingum
Yamal skoraði tvö mörk og gaf stoðsendingu og heldur ótrúlega góðri byrjun á nýju tímabili áfram. Táningurinn hefur verið gjörsamlega óstöðvandi eftir að hafa fengið gagnrýni fyrir litla markaskorun á HM í sumar.
„Fyrir mánuði síðan voruði allir að segja að ég væri að standa mig illa..." sagði brosandi Yamal við fjölmiðla eftir magnaða frammistöðu gegn Króötum. „Þessa stundina er ég rólegur og að njóta mín, en ég veit að þið gætuð byrjað aftur að gagnrýna mig hvenær sem er og segja sömu hluti og þið sögðuð í síðasta mánuði."
Yamal hefur komið með beinum hætti að 18 mörkum í 10 leikjum með Barcelona og landsliðinu á upphafi tímabils. Hann fagnaði öðru marka sinna gegn Króatíu að hætti Thierry Henry, sem lék fyrir Barcelona frá 2007 til 2010.
„Þetta er goðsagnakennt fagn og mig langaði að gera það. Thierry Henry er goðsögn."
Ballon d'Or verðlaunin eru afar umtöluð þessa dagana enda aðeins nokkrar vikur í verðlaunaafhendinguna. Yamal vill vinna verðlaunin en er að berjast við afar öfluga keppinauta á borð við Harry Kane og Kylian Mbappé.
„Ég er ekki að spila til að vinna Ballon d'Or, ég er að spila til að vinna fótboltaleiki. Ég spila fyrir liðið mitt, fyrir þjóðina mína og fyrir sjálfan mig. Við erum að gera frábæra hluti og verðum að halda áfram á sömu braut."
Nico Williams landsliðsfélagi Yamal í spænska landsliðinu tjáði sig einnig að leikslokum: „Allir þeir sem skilja fótbolta vita að Lamine Yamal á að vinna Ballon d'Or. Ég vona að Lamine vinni. Ef þú virkilega þekkir fótbolta og raunverulega elskar íþróttina, þá veistu að Lamine er bestur í heimi," sagði Williams.