Pierre-Emerick Aubameyang, framherji Arsenal, hljóp óvænt af velli undir lokin í 2-1 tapinu gegn Brighton í gær.
Aubameyang mætti aftur út á völl nokkrum mínútum seinna en Fredrik Ljungberg, stjóri Arsenal, útskýrði eftir leik að leikmaðurinn hefði þurft að bregða sér á klósettið.
Aubameyang mætti aftur út á völl nokkrum mínútum seinna en Fredrik Ljungberg, stjóri Arsenal, útskýrði eftir leik að leikmaðurinn hefði þurft að bregða sér á klósettið.
„Hann hljóp út af og kom aftur tveimur eða þremur mínútum síðar. Ef þér líður illa þá líður þér illa og það er ekkert sem þú getur breytt í því," sagði Ljungberg.
„Ég tók reyndar ekki eftir því þegar hann fór af velli. Ég sá hann bara koma til baka eftir að hann hafði verið frá í nokkrar mínútur."
Arsenal tapaði 2-1 í gærkvöldi en liðið gerði 2-2 jafntefli í fyrsta leiknum undir stjórn Ljungberg um síðustu helgi.
Athugasemdir