Fotbolti.net
07.01.19 - 18:38
Ívan Guðjón Baldursson

Óli Jó ánægður með nýju mennina: Kristinn í aðgerð á miðvikudaginn

Auglýsing
Óli Jó með nýju leikmönnum Vals.

Óli Jó með nýju leikmönnum Vals.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Íslandsmeistarar Vals voru að bæta við sig þremur leikmönnum fyrir næsta tímabil og er Ólafur Jóhannsson hæstánægður með að hafa krækt í öfluga leikmenn.
Gary Martin, sem hefur gert 43 mörk í 93 Pepsi-deildarleikjum, skrifaði undir hjá félaginu auk Emil Sigvardsen Lyng, sem gerði 9 mörk í 20 Pepsi-deildarleikjum fyrir KA sumarið 2017. Þá gekk Lasse Petry einnig í raðir Valsara en hann hefur ekki leikið á Íslandi áður og á 75 leiki að baki fyrir Nordsjælland.

„Það er oft þannig þegar við erum að fá þessa erlendu leikmenn að við vitum kannski ekki allt um þá, en við erum með ágætis tengslanet í Danmörku og þeir menn segja okkur að hann sé mjög góður og henti í okkar leikstíl," sagði Óli um Petry í viðtali við Fótbolta.net og tók fram að Daninn er ekki fenginn til að leysa Kristinn Frey Sigurðsson af hólmi, sem hefur legið á spítala undanfarinn mánuð eftir að hafa fengið sýkingu í skurð á hné.

„Emil getur spilað sem senter og hann getur spilað á miðjunni þannig hann er svona alhliða leikmaður og stóð sig feykivel með KA þegar hann var hérna. Við erum aðallega að stækka hópinn og gera okkur klára fyrir mótið."

Óli segir að Valsarar séu ekki að leita sér að fleiri leikmönnum enda sé hópurinn fullmannaður. Hann býst við að Kristinn verði klár í sumar en hann fer í aðra aðgerð á hné á miðvikudaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.