Þýskalandsmeistarar Bayern München hafa opnað viðræður við Newcastle United um enska sóknarmanninn Anthony Gordon. Þetta fullyrðir Sky Sports í kvöld.
Newcastle ætlar að hlusta á tilboð í Gordon í sumar þar sem félagið er að búast við að hann vilji skoða möguleika sína.
Sky Sports segir að samband Newcastle og Bayern sé mjög gott og viðræður um Gordon séu hafnar.
Umboðsmenn Gordon hafa einnig sést í Barcelona, en engar formlegar viðræður hafa átt sér stað á milli aðilanna.
Gordon hefur skorað 17 mörk fyrir Newcastle á tímabilinu, þar af tíu mörk í Meistaradeildinni.
Hann er uppalinn hjá Liverpool og síðar Everton, en fór frá þeim bláu til Newcastle árið 2023.



