Fotbolti.net
24.06.26 - 16:30
Kári Snorrason

„Stærsta vandamálið var að yfirgefa ÍA“

Yfirgefur ÍA eftir leik Skagans gegn Breiðabliki 4. júlí.

Yfirgefur ÍA eftir leik Skagans gegn Breiðabliki 4. júlí.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dean Martin mun láta af störfum sem aðstoðarþjálfari ÍA þann 4. júlí en hann er að taka við nýju starfi sem aðstoðarþjálfari hjá Al Nahdha í Óman.

Síðasti leikur hans með ÍA verður gegn Breiðabliki þann 4. júlí áður en hann heldur til Óman. Dean hefur verið í teymi Skagamanna í rúm tvö ár en hann var jafnframt leikmaður ÍA og áður aðstoðarþjálfari hjá liðinu 2010-2013.

Al Nahdh endaði liðið í fjórða sæti af 14 liðum í efstu deild í Óman. Liðið hefur fjórum sinnum orðið deildarmeistarar.

Fótbolti.net ræddi við Dean um skrefið áhugaverða og hvernig það kæmi til að hann héldi á suðausturströnd Arabíuskagans.
Dean Martin kveður ÍA (Staðfest) - Tekur við spennandi starfi í Óman
TENGT EFNI

Dean Martin kveður ÍA (Staðfest) - Tekur við spennandi starfi í Óman

Kynntust á þjálfaranámskeiði
„Þetta kom þannig til að ég var á UEFA Pro License þjálfaranámskeiði í Skotlandi fyrir nokkrum árum síðan. Það voru margir þjálfarar þarna og ég kynnist manni sem heitir Scott Calderwood sem verður aðalþjálfari liðsins í Óman.

Við náðum vel saman og unnum mikið saman í þessi tvö ár sem námskeiðið tók. Það kitlaði alltaf að vinna saman einn daginn. Hann fékk þetta tækifæri og vildi taka mig með,“
sagði Dean og var hann spurður hvort hann hafi þurft langan umhugsunartíma.

„Hann hringdi í mig og spurði mig hvort ég væri til í þetta. Svona verkefni koma ekki á hverjum degi. Þetta er tækifæri sem þú færð bara einu sinni á lífsleiðinni. Þetta er ævintýri og ég ætla að fara þarna til þess að gera góða hluti. Þetta er gott lið sem ég er að fara til, með átta landsliðsmenn innanborðs og miklar væntingar.“

Mikil breyting
Dean var spurður hvort að hann hefði kynnt sér Óman sérstaklega og hvernig aðstaðan hjá félaginu væri.„Það er heitt, ég veit það,“ sagði Deano léttur og hélt áfram;

„Þetta er lið með toppaðstæður. Frábær völlur og góð æfingaaðstaða. Ég hlakka til að upplifa nýjan kúltúr, ég mun reyna að koma mér inn í menninguna eins fljótt og hægt er. Þetta er ekki ósvipað og að fara til Kína - maður verður að aðlagast einn, tveir og bingó.“

Erfitt að yfirgefa ÍA
Eins og fyrr sagði hefur Dean mikla tengingu við ÍA, fyrst sem leikmaður og síðar hefur hann verið í teyminu á tveimur mismunandi skeiðum.

„Stærsta vandamálið fyrir mig var að yfirgefa ÍA. Ég elska þennan klúbb og elska að vinna hérna. Ég átti góða samleið með fólkinu hérna í klúbbnum; Lárusi Orra, Ingimar Elí, leikmönnum og öllum stjórnarmönnunum. Þetta er geggjað tækifæri en leiðinlegt að fara frá félaginu. Það er erfitt að labba út á miðju tímabili. En félagið skilur að þetta er stórt tækifæri sem erfitt er að hafna.“

„Samstarf mitt og Lárusar er frábært. Hann er faglegur og með mikla reynslu, það er gaman að spjalla við hann um fótbolta. Klúbburinn er geggjaður og á réttri leið. Það er alltaf vilji til að bæta sig, miklar kröfur og það róa allir í sömu átt. Aðstaðan er frábær, líklegast flottasti ræktarsalur á Íslandi. Það er mjög erfitt að fara frá öllu sem ég hef talið upp. En maður verður stundum að stökkva á tækifærin þegar þau koma. Þetta er stórt tækifæri að prófa eitthvað nýtt til að bæta sig sem þjálfara og manneskju,“ sagði Dean að lokum.
Í leik með Skaganum 2005.

Í leik með Skaganum 2005.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ómar Vilhelmsson

Frábært að vinna með Lárusi.

Frábært að vinna með Lárusi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

ÍA er í 6. sæti deildarinnar.

ÍA er í 6. sæti deildarinnar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

 „Tækifæri sem þú færð bara einu sinni á lífsleiðinni“

„Tækifæri sem þú færð bara einu sinni á lífsleiðinni“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.