Siggi Raggi stoltur: Mig langaði að fara grenja

Mynd: NSÍ Runavík

Mynd: NSÍ Runavík
„Ég hef held ég aldrei verið jafn stoltur af liðinu mínu og í dag. Mig langaði að fara að grenja fyrir hönd strákanna eftir leikinn," skrifaði Sigurður Ragnar Eyjólfsson, þjálfari NSÍ í Færeyjum, á Facebook eftir grátlegt tap liðsins gegn KÍ í undanúrslitum færeyska bikarsins í gær.
NSÍ tapaði fyrri leiknum 4-2 á heimavelli en gerði sér lítið fyrir og vann 4-2 í gær. Liðið jafnaði metin í einvíginu í uppbótatíma í venjulegum leiktíma og í framlengingunni. NSÍ tapaði hins vegar að lokum í vítaspyrnukeppni.

TENGT EFNI
Algjör rússíbani hjá Alex Frey og Sigga Ragga
Siggi Raggi bendir á þá sturluðu staðreynd að KÍ var ósigrað í 62 leikjum í röð fyrir leikinn í gær.
„Leikmenn NSÍ í dag spiluðu með risastórt hjarta, sýndu geggjaða baráttu og sjálfstraust, óttalausir með kassann úti! Í mínum augum var bara eitt lið sigurvegari á vellinum í dag og það var lið NSÍ. Þvílíkt statement að leggja af velli lið sem hefur ekki tapað í 62 leikjum í röð og er með margfalt meiri fjárráð en við. Það verður ekki tekið frá strákunum mínum í dag. Annað statement er það að við höfum unnið hvern einasta leik á heimavelli okkar á þessu ári. Saman stöndum við sterk eru einkunnarorð NSÍ. Ég gæti ekki verið stoltari af leikmönnum og þjálfarateymi NSÍ í þessum leik," skrifaði Siggi Raggi.
NSÍ er á toppi færeysku deildarinnar með 32 stig eftir 14 umferðir. Liðið er með tveggja stiga forystu á KÍ. Alex Freyr Elísson er leikmaður liðsins.