Fotbolti.net
25.06.26 - 07:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Naut sín með fjölskyldunni eftir sinn síðasta leik á ferlinum

Naut sín með fjölskyldunni eftir sinn síðasta leik á ferlinum
Canon

Mynd: EPA

Mexíkóski markvörðurinn Guillermo Ochoa spilaði sinn síðasta leik á ferlinum þegar hann kom inn á sem varamaður í 3-0 sigri Mexíkó gegn Tékklandi í nótt.

Ochoa er orðinn fertugur en hann hefur verið í mexíkóska hópnum á sex heimsmeistaramóti.
Hann hafði ekki spilað fyrstu tvö leikina en búist var við því að hann myndi byrja í nótt. Það var ekki raunin en hann kom hins vegar inn á sem varamaður og spilaði um 12 mínútur.

Samherjar hans heiðruðu hann eftir leikinn og þá naut hann sín með fjölskyldunni inn á vellinum síðustu andartökin á ferlinum.

„Fyrsti leikurinn var á Azteca, sá síðasti var á Azteca. Þetta hefur verið fallegur lokakafli á ferlinum. Takk allir saman," sagði Ochoa eftir leikinn.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.