Fotbolti.net
07.07.26 - 11:39
Elvar Geir Magnússon

A Bola: Ronaldo, við viljum ekki drepa þig en þetta er komið gott

A Bola segir tími til að Ronaldo hætti að leika fyrir portúgalska landsliðið.

A Bola segir tími til að Ronaldo hætti að leika fyrir portúgalska landsliðið.

Canon

Mynd: A Bola

„Cristiano Ronaldo: Við viljum ekki drepa þig en þetta er komið gott," skrifar portúgalska blaðið A Bola. Portúgal er úr leik á HM eftir 1-0 tap gegn Spáni í gær.

A Bola er að vísa í ummæli Ronaldo fyrir leik þar sem hann skaut á fjölmiðlamenn og sagði að þeir hefðu „reynt að drepa sig“ í 23 ár.
Ronaldo skaut á fjölmiðlamenn: Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár
TENGT EFNI

Ronaldo skaut á fjölmiðlamenn: Þið hafið reynt að drepa mig í 23 ár

„Það er kominn tími fyrir Cristiano Ronaldo að stíga til hliðar því eins og við höfum þegar gert okkur grein fyrir þá leyfir egóið hans ekki að hann sé tekinn af velli þó frammistaða hans sé ekki góð."

„Það mun aldrei fást svar við því hvernig þetta heimsmeistaramót hefði verið ef sú óheilbrigða kvöð hefði verið til staðar að þurfa að hafa Cristiano Ronaldo inni á vellinum allan tímann – í hverjum einasta leik – og ekki einu sinni Donald Trump getur snúið þessari niðurstöðu við."

Margir sérfræðingar hafa talað um að Ronaldo hafi verið akkilesarhæll portúgalska liðsins og Roberto Martínez þjálfari verið gagnrýndur fyrir að hafa ekki þor né kjark til að hafa stórstjörnuna á bekknum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.