Fotbolti.net
07.07.26 - 10:41
Kári Snorrason
Í samstarfi við styrktaraðila

Rosenior tekinn við Paris FC (Staðfest)

Rosenior tekinn við Paris FC (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Enski stjórinn Liam Rosenior er tekinn við sem nýr stjóri Paris FC. Hann skrifar undir tveggja ára samning við félagið.

Rosenior var rekinn frá Chelsea í apríl eftir aðeins þrjá mánuði í starfi. Áður en hann tók við Lundúnaliðinu stýrði hann Strasbourg í Frakklandi við góðan árangur.

Paris endaði í 11. sæti á síðasta tímabili sem nýliðar í deildinni. Tímabilið byrjaði illa og réðist félagið í stjóraskipti í febrúar.

Antoine Kombouare tók við liðinu og náði að snúa slæmu gengi við. Hann skrifaði undir samning út næsta tímabil en þrátt fyrir góðan árangur var ákveðið að ráðast aftur í þjálfarabreytingar.
Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.