Fotbolti.net
07.07.26 - 19:59
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gatorade

Gatorade bikar Fótbolta.net: Nenni skaut KFA í 8-liða úrslit

Gatorade bikar Fótbolta.net: Nenni skaut KFA í 8-liða úrslit
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

KFA 3 - 2 Augnablik
1-0 Kifah Moussa Mourad ('2 , víti)
2-0 Þór Sigurjónsson ('60 )
2-1 Maríus Warén ('68 )
2-2 Finnur Breki Finnsson ('76 )
3-2 Nenni Þór Guðmundsson ('79 )
Lestu um leikinn
KFA er komið áfram í 8-liða úrslit Gatorade bikars Fótbolta.net eftir sigur á Augnabliki í hörkuleik.

KFA fékk vítaspyrnu strax í upphafi leiks og Kifah Moussa Mourad kom liðinu yfir.

Bæði lið fengu tækifæri til að skora í fyrri hálfleik en eitt mark skildi liðin að.

Þór Sigurjónsson bætti öðru marki KFA við eftir klukkutíma leik þegar hann fylgdi á eftir skoti Nenna Þórs Guðmundssonar. Kifah var hársbreidd frá því að bæta þriðja markinu við strax í kjölfarið en skotið rétt framhjá.

Maríus Warén minnkaði muninn eftir frábæran undirbúning Kristjáns Lúðvíks Möller. Finnur Breki Finnsson jafnaði síðan metin eftir vandræðagang hjá KFA.

Nenni Þór tryggði KFA hins vegar sigurinn stuttu síðar þegar hann skoraði eftir laglegt samspil við Jawed Boumeddane og KFA er komið áfram í 8-liða úrslitin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.