Meistaradeildin: Dramatískur sigur hjá Víkingum

Nikolaj Hansen skorar sigurmarkið

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Víkingur vann dramatískan sigur á ungversku meisturunum í Györ í fyrri leik liðanna í fyrstu umferð forkeppni Meistaradeildarinnar í kvöld.
Víkingar voru með yfirhöndina í fyrri hálfleik. Gylfi Þór Sigurðsson reyndi að setja boltann yfir Samuel Petras markvörð Györ strax í upphafi leiks en markvörðurinn sá við honum. Gylfi tók síðan aukaspyrnu en vel varið hjá Petras.
Elías Már Ómarsson fékk besta færi leiksins til þessa á 38. mínútu en aftur var Petras með allt á hreinu og varði vel. Rétt áður vildu Víkingar frá vítaspyrnu þegar Elías virtist vera rifinn niður en ekkert dæmt.
Víkingar urðu fyrir áfalli undir lok fyrri hálfleiks þegar Elías þurfti að fara af velli en hann virtist meiðast illa á hné. Nikolaj Hansen kom inn á í hans stað.
Víkingur fékk úrvalsfæri til að komast yfir snemma í seinni hálfleik. Valdimar Þór Ingimundarson átti skalla í slá og Niko Hansen fylgdi á eftir en skallaði framhjá úr dauðafæri.
Valdimar fékk annað færi stuttu síðar en Petras varði frá honum. Karl Friðleifur Gunnarsson náði frákastinu en varnarmenn Györ komust fyrir.
Gestirnir komust næst því að skora eftir skot úr aukaspyrnu en Oliver Ekroth komst fyrir og skallaði boltann í horn.
Það var dramatík í lokin þar sem Niko tryggði Víkingum sigurinn með skallamarki þegar hann fylgdi á eftir skalla frá Óskari Borgþórssyni. Hann meiddist í kjölfarið þar sem Mark Csinger sparkaði í höfuðið á honum.
Valdimar hefði getað innsiglað sigurinn í blálokin en skotið af stuttu færi yfir markið.
Seinni leikur liðanna fer fram eftir slétta viku í Ungverjalandi.