Elías Már virtist meiðast illa á hné

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Áföllin dynja á Víkingum en Elías Már Ómarsson þurfti að fara af velli vegna meiðsla á hné undir lok fyrri hálfleiksins gegn Györ í forkeppni Meistaradeildarinnar.
„Þetta lítur ekki vel út. Virtist snúa upp á hnéð og liggur sárþjáður eftir," skrifaði Ívar Björgvinsson í textalýsinguna hér á Fótbolti.net.

TENGT EFNI
Gunnar Vatnhamar meiddist í upphitun - Sveinn Gísli kemur inn
Börurnar voru til taks en Elías gekk af velli og fékk lófaklapp frá stuðningsmönnum Víkinga.
Víkingar urðu fyrir áfalli í aðdraganda leiksins þegar Gunnar Vatnhamar meiddist í upphitun en Sveinn Gísli Þorkelsson kom inn í liðið í hans stað.
Elías Már hefur verið stórkostlegur í sumar en hann hefur skorað 12 mörk í 14 leikjum í deildinni og tvö mörk í þremur leikjum í bikarnum.
Staðan er enn markalaus en Víkingar hafa verið mun betri aðilinn.