Eyðir nánast öllum sínum tíma í Víkinni

Daníel Darri Arnarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Víkingar fagna sigri.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Daníel Darri Arnarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hinn 19 ára gamli Daníel Darri Arnarsson starfar sem leikgreinandi fyrir Íslandsmeistara Víkings.
Þessi frétt er hluti af pistli sem birtist 3. júlí á áskriftarvef Fótbolti.net. Pistillinn í heild sinni er hægt að nálgast hér fyrir neðan, boðið er upp á ókeypis viku áskrift gegn skráningu.
Smelltu hér til að skrá þig í fría viku og lesa pistilinn í heild sinni.

Þrátt fyrir ungan aldur er dagskráin þétt en það fer mikil vinna í starf leikgreinanda.
„Það fer nú alveg ágætis vinna í þetta allt saman," segir Daníel. „Ég hef reynt að blanda þessu saman með skólanum. Það er náttúrulega frí núna yfir sumarið en ég er í íþróttafræðinni í HR og það gekk ekki eins vel og ég hélt. Ég er að reyna að finna einhvern jafnvægispunkt á þessu."
Fótboltinn tekur mikinn tíma. „Ég er ekki alveg í fullu starfi en ég eyði eiginlega öllum mínum tíma niðri í Víkinni."
Þar hefur hann einnig tekið að sér þjálfun.
„Þegar ég er ekki að greina, þá er ég að gera eitthvað annað þar. Ég er til dæmis orðinn aðstoðarþjálfari 2. flokks með Matthíasi Vilhjálmssyni og Bjarna Lárusi Hall sem er búið að vera frekar gaman og skemmtileg upplifun."

TENGT EFNI
19 ára leikgreinandi Íslandsmeistaranna

Víkingar fagna sigri.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð