Newcastle að kaupa vonarstjörnu Ajax

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Newcastle hefur náð samkomulagi um kaupverð á hollenska miðjumanninum Sean Steur hjá Ajax.
Sagt er að Newcastle greiði 20 milljónir punda og sú upphæð getur hækkað um þrjár milljónir í bónusgreiðslum. Steur er sagður til í að fara frá Ajax þar sem honum hefur ekki verið lofað stóru hlutverki á komandi tímabili.
Newcastle þarf að fá inn miðjumann þar sem Sandro Tonali var seldur til Tottenham og gæti verið litið á Steur sem arftaka Tonali. Félagaskiptin munu ganga í gegn ef Steur fer í gegnum læknisskoðun.

Steur er 18 ára og er litið á hann sem vonarstjörnu sem geti náð mjög langt.
Newcastle vill fá inn leikmenn með hátt þak, eru á aldrinum 18-24 ára og kosti á bilinu 20-40 milljónir punda.
Newcastle hefur keypt Bazou Toure og Ewen Joauen í sumar og selt Anthony Gordon og Tonali.