Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 08. apríl 2021 16:30
Elvar Geir Magnússon
Ræða við Welbeck um nýjan samning
Danny Welbeck er þrítugur.
Danny Welbeck er þrítugur.
Mynd: Getty Images
Brighton ætlar að ræða við sóknarmanninn Danny Welbeck um nýjan samning en þetta hefur Graham Potter, stjóri liðsins, staðfest.

„Hann er á góðu skriði, við erum mjög ánægðir með hann," segir Potter.

„Það var pirrandi þegar við misstum hann í meiðsli en hann er frábær í hópnum. Í lok tímabilsins munum við setjast niður með honum og finna réttu lausnina fyrir alla."

Welbeck skoraði um síðustu helgi gegn sínu fyrrum félagi, Manchester United. Alls er hann kominn með fjögur mörk í sautján úrvalsdeildarleikjum á tímabilinu.

Brighton, sem er í 16. sæti ensku úrvalsdeildarinnar, mætir Everton á mánudagskvöld.

Potter sagði frá því á fréttamannafundi í dag að varnarmennirnir Adam Webster og Dan Burn séu báðir mættir aftur til æfinga en þeir voru á meiðslalistanum.
Athugasemdir
banner
banner