14.09.26 - 13:23
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Langflottasta mark ferilsins - „Gaman að sjá hann syngja í netinu"

Frábært skot.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Fagnaði með stæl

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Fimmta markið í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

'Gaman að sjá hann syngja í netinu'

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Frábært skot.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Tómas Orri Róbertsson skoraði stórglæsilegt mark í gær þegar FH sigraði KA í 23. umferð Bestu deildarinnar. Tómas fékk boltann vel fyrir utan vítateig KA, lét vaða og boltinn söng í netinu. Tómas var valinn maður leiksins í gær.
„Stórkostlegt skot, neglir þessu í samskeytin og Ívar (markmaður KA) kemur engum vörnum við," sagði Magnús Þórir Matthíasson um markið er hann lýsti því á Sýn Sport.
„Skorar gullfallegt mark sem kom líka á fullkomnum tímapunkti til að gefa KA mönnum alvöru högg í magann. Hann var líka eins og ávallt harður í horn að taka á miðjunni," skrifaði Haraldur Örn Haraldsson um Tómas í skýrslunni eftir leikinn.

Lestu um leikinn: FH 3 - 0 KA
Fótbolti.net ræddi við Tómas um markið, leikinn og stöðuna í deildinni.
„Já, þetta mark er held ég það langflottasta sem maður hefur skorað a ferlinum. Ég var búinn að eiga 2-3 alveg skelfileg skot fyrr í leiknum en ég fann það eiginlega strax í skotinu að ég hefði hitt hann vel og gaman að sjá hann syngja í netinu," segir Tómas Orri.
Hvernig metur Tómas leikinn?
„Mér fannst við gera okkar hluti sem við ætluðum okkur að flestu leyti bara vel. Mér fannst fyrri hálfleikur vera smá mikil stöðubarátta út um allan völl en svo nýttum við okkar stöður betur heldur en KA."
Eiður Smári Guðjohnsen, þjálfari KA, sagði að sitt lið hefði verið með góða stjórn á leiknum framan af og heilt yfir betri aðilinn. „FH skorar svo bara drauma mark og komast í 2-0. Þá var þetta orðin mikil brekka," sagði Eiður við Fótbolta.net.
„Þeir fengu sýnar stöður og færi eins og Eiður talaði um en þegar menn eru tilbúnir að leggja allt í verkefnið eins og við gerðum þá detta hlutirnir þér í hag. Mér fannst við klára þennan leik fagmannlega sem liðið á stórt hrós skilið fyrir," segir Tómas Orri.
FH átti ekki sinn besta leik í leiknum á undan gegn Þór fyrir norðan.
„Það er svo sem ekkert mikið sem við breyttum frá slakri frammistöðu á móti Þór. Mér finnst munurinn á þessum tveimur leikjum einfaldlega vera orkustigið. Við erum sífellt að reyna bæta okkur sem lið og þá er mikilvægt að mæta mótiveraður inn í hvern einasta leik með hátt orkustig og baráttu því það er enginn spurning að þá koma gæðin sem búa í þessu liði í ljós."
Hvernig leggst lokakaflinn í þig, fjögur stig núna niður í fallsæti?
„Ég er bara bjartsýnn og spenntur að spila þá leiki sem framundan eru. Við setjum alla einbeitingu núna á næsta leik sem er á móti Stjörnunni og ætlum okkur þrjú stig þar," segir Tómas Orri.
Jói Long tók meðfylgjandi myndir af Tómasi fagna markinu sínu í gær.

Tómas Orri skoraði eitt af mörkum tímabilsins gegn Akureyringum! ???????????? #bestadeildin pic.twitter.com/n9nEKWq28g
— Besta deildin (@bestadeildin) September 13, 2026
Hvernig metur Tómas leikinn?
„Mér fannst við gera okkar hluti sem við ætluðum okkur að flestu leyti bara vel. Mér fannst fyrri hálfleikur vera smá mikil stöðubarátta út um allan völl en svo nýttum við okkar stöður betur heldur en KA."
Eiður Smári Guðjohnsen, þjálfari KA, sagði að sitt lið hefði verið með góða stjórn á leiknum framan af og heilt yfir betri aðilinn. „FH skorar svo bara drauma mark og komast í 2-0. Þá var þetta orðin mikil brekka," sagði Eiður við Fótbolta.net.
„Þeir fengu sýnar stöður og færi eins og Eiður talaði um en þegar menn eru tilbúnir að leggja allt í verkefnið eins og við gerðum þá detta hlutirnir þér í hag. Mér fannst við klára þennan leik fagmannlega sem liðið á stórt hrós skilið fyrir," segir Tómas Orri.
FH átti ekki sinn besta leik í leiknum á undan gegn Þór fyrir norðan.
„Það er svo sem ekkert mikið sem við breyttum frá slakri frammistöðu á móti Þór. Mér finnst munurinn á þessum tveimur leikjum einfaldlega vera orkustigið. Við erum sífellt að reyna bæta okkur sem lið og þá er mikilvægt að mæta mótiveraður inn í hvern einasta leik með hátt orkustig og baráttu því það er enginn spurning að þá koma gæðin sem búa í þessu liði í ljós."
Hvernig leggst lokakaflinn í þig, fjögur stig núna niður í fallsæti?
„Ég er bara bjartsýnn og spenntur að spila þá leiki sem framundan eru. Við setjum alla einbeitingu núna á næsta leik sem er á móti Stjörnunni og ætlum okkur þrjú stig þar," segir Tómas Orri.
Jói Long tók meðfylgjandi myndir af Tómasi fagna markinu sínu í gær.

Fagnaði með stæl

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Fimmta markið í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

'Gaman að sjá hann syngja í netinu'

Mynd: Fótbolti.net - J.L.
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Stjarnan | 23 | -6 | 31 |
| 2 | Valur | 23 | -3 | 30 |
| 3 | FH | 23 | -9 | 24 |
| 4 | Þór | 23 | -31 | 21 |
| 5 | KA | 23 | -16 | 20 |
| 6 | ÍBV | 23 | -15 | 18 |