Fotbolti.net
08.07.21 - 20:01
Ívan Guðjón Baldursson

Sambandsdeildin: FH með forystuna

Sambandsdeildin: FH með forystuna
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

FH 1 - 0 Sligo Rovers
1-0 Steven Lennon ('85)
Rautt spjald: Greg Bolger, Sligo ('77)
FH mætti til leiks í Sambandsdeildinni í kvöld er Sligo Rovers kíkti í heimsókn frá Írlandi.

Leikurinn var nokkuð jafn framanaf en gestirnir fengu hættulegasta færið í síðari hálfleik, skömmu áður en þeir misstu fyrirliðann sinn Greg Bolger af velli.

Bolger fékk sitt seinna gula spjald á 77. mínútu þegar hann dýfði sér innan vítateigs FH-inga í tilraun til að fiska vítaspyrnu.

Þá var meðbyr með Hafnfirðingum og var Vuk Oskar Dimitrijevic skipt inná. Þremur mínútum síðar átti hann glæsilega fyrirgjöf sem Steven Lennon stýrði í netið.

Það reyndist sigurmarkið og fer FH inn í seinni leikinn með eins marks forystu. Sligo Rovers leika heimaleiki sína í Sligo í norðurhluta Írlands.

Sjáðu textalýsinguna
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.