Fotbolti.net
20.07.26 - 22:57
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Skrifar frá: Keflavík

„Held að það sé ekki langt í að við sjáum hann í A-landsliði Íslands"

Auglýsing
Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur.

Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Frábær sigur á heimavelli hjá okkur í dag. Hann var síst of stór og við hefðum getað skorað mun fleiri mörk," sagði Haraldur Freyr Guðmundsson, þjálfari Keflavíkur, eftir 5-2 sigur gegn ÍA í Bestu deildinni í kvöld.
Davíð Helgi til Lyngby (Staðfest) - Býst við því að verðmæti hans muni aukast verulega
TENGT EFNI

Davíð Helgi til Lyngby (Staðfest) - Býst við því að verðmæti hans muni aukast verulega

Lestu um leikinn: Keflavík 5 - 2 ÍA
„Sóknarleikurinn er frábær í fyrri hálfleik þar sem við sköpum urmul af færum og skorum tvö góð mörk. Við höldum áfram í seinni hálfleik og erum áræðnir."

Mörkin hjá Keflavík voru virkilega falleg í kvöld. „Ég er hrikalega ánægður með strákana."

Eiður Orri Ragnarsson átti stórleik í liði Keflavíkur og skoraði tvö mörk, var óheppinn að skora ekki þrennu í leiknum. „Eiður var frábær hérna í dag ásamt fleirum. Hann er búinn að vera aðeins út úr liðinu og á bekknum. Hann kemur með alvöru svar þegar hann kemur inn í liðið," sagði Haraldur Freyr.

Davíð Helgi Aronsson, sem hefur leikið vel með Keflvíkingum í sumar á láni frá Víkingum, er farinn til Lyngby í Danmörku. Haraldur hefur ekkert nema gott um hann að segja.

„Davíð er frábær leikmaður og er búinn að standa sig hrikalega vel fyrir okkur. Auðvitað vissum við að ef hann myndi standa sig vel yrði mjög líklegt að hann yrði lánaður eða keyptur í erlent félag. Við bjuggumst við því. Við óskum honum góðs gengis á nýjum stað."

„Þakið er helvíti hátt hjá honum. Hann getur farið eins langt og hann vill. Ég held að það sé ekki langt í að við sjáum hann í A-landsliði Íslands," sagði þjálfari Keflvíkinga en allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.
Eiður Orri átti stórleik fyrir Keflavík.

Eiður Orri átti stórleik fyrir Keflavík.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Davíð Helgi lék virkilega vel með Keflavík fyrri hluta tímabilsins.

Davíð Helgi lék virkilega vel með Keflavík fyrri hluta tímabilsins.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.