Fotbolti.net
20.07.26 - 11:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Man Utd kaupir spennandi leikmann af Tottenham (Staðfest)

Man Utd kaupir spennandi leikmann af Tottenham (Staðfest)
Canon

Mynd: Man Utd

Manchester United hefur fest kaup á kantmanninum Tynan Thompson sem kemur frá Tottenham.

Thompson er 18 ára og þykir mikið efni. Hann skoraði 13 mörk og lagði upp sex fyrir U18 lið Tottenham á liðnu tímabili. Hann á að baki sjö leiki fyrir enska U18 landsliðið.

Hann var þrisvar sinnum í hópnum hjá Tottenham á liðinni leiktíð, m.a. gegn PSG og Dortmund í Meistaradeildinni.
Samkvæmt heimildum Sky Sports getur Tottenham fengið allt að 8 milljónir punda fyrir Thompson út frá árangurstengdum gjöldum. 4 milljónir punda koma strax og sú upphæð getur svo tvöfaldast ef leikmaðurinn gerir góða hluti hjá United.

Tottenham fær einnig 15% af hagnaðinum af næstu sölu á leikmanninum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.