Yfirlýsing frá Messi: Sársaukinn er gífurlegur

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Lionel Messi hefur gefið frá sér yfirlýsingu eftir tap Argentínu gegn Spáni í úrslitaleik heimsmeistaramótsins.

TENGT EFNI
HM: Spánn heimsmeistari í annað sinn eftir sigur í framlengingu
Argentínumenn spiluðu hörmulega leiðinlegan fótbolta í úrslitaleiknum og verðskulduðu að tapa. Messi gerði lítið sem ekkert þar til eftir að Argentína missti mann af velli með rautt spjald og lenti marki undir í framlengingu.
Þetta var þriðji úrslitaleikurinn sem Messi spilar á HM, eftir tap gegn Þýskalandi 2014 og sigur gegn Frakklandi 2022.
„Sársaukinn er gífurlegur og það mun taka tíma fyrir þetta sár að gróa, en ég held í allar góðu minningarnar eins og leikina sem við snérum við með að gefa okkur alla í verkefnið og stuðninginn sem heil þjóð veitti okkur," segir meðal annars í yfirlýsingu Messi.
„Ég mun aldrei gleyma stuðningnum og vinnunni sem fór í það að komast aftur alla leið í úrslitaleik heimsmeistaramótsins. Í dag er erfitt að meðtaka það sem þessi leikmannahópur hefur afrekað, að komast tvisvar sinnum í röð í úrslitaleik HM.
„Ég vil þakka ykkur öllum frá dýpstu hjartarótum fyrir veittan stuðning. Við getum verið stolt af því að vera sameinuð argentínsk þjóð.
„Ég vil líka nýta tækifærið til að óska Spánverjum til hamingju með heimsmeistaratitilinn."
39 ára Messi gerði frábært mót á HM í sumar þar sem hann endaði næstmarkahæstur með 8 mörk og 4 stoðsendingar. Ólíklegt er að hann taki þátt með Argentínu á HM 2030.

Hegðunin í úrslitaleiknum skammarlegur blettur á ferli Messi

Mynd: EPA

Mynd: EPA