Gylfi: Virðist vera miög öflugur slúttari sem er eitthvað sem við megum alveg við

Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindavík/Njarðvík vann öflugan sigur á liði Þróttar í kvöld þegar 12. umferð Bestu deild kvenna hélt áfram göngu sinni.
Bæði lið hafa verið í örlitlu brasi upp á síðkastið og því kærkomið fyrir Grindavík/Njarðvík að sækja þrjú stig á heimavelli í kvöld.
„Mér fannst við mjög góðar í dag og mér fannst við eiga bara virkilega öfluga frammistöðu" sagði Gylfi Tryggvason þjálfari Grindavík/Njarðvík eftir sigurinn í kvöld.
„Fengum á okkur mark snemma og vorum bara samt hugrakkar og glaðar í dag. Við héldum áfram að vera það þó við fengjum á okkur fyrsta markið og mér fannst við vera með algjöra stjórn á þessu í fyrri hálfleik. Náum að jafna í lok fyrri sem að var bara gott. "
„Lendum undir aftur í byrjun seinni sem að var högg. Mér fannst það ekki liggja í loftinu beint þannig það getur verið lýjandi að vera ofan á lengi í leik og fá á sig mark, það er þreytt"
„Ótrúlegur karakter og frábært hugarfar hjá þessu liði ofan á stórkostlega innkomu frá einum af okkar nýjustu leikmönnum sem að skilaði bara flottri frammistöðu í dag"
Santa Sanija Vuskane nýr leikmaður Grindavík/Njarðvík átti stórkostlega innkomu inn í liðið í dag en hún kom inn af bekknum og skoraði þrennu fyrir sitt lið í kvöld og tryggði þeim sigurinn.
„Það væri frekja og ég er ekki í neinni stöðu til þess að vera biðja um eitthvað meira en þetta. Þetta var bara meira en nóg fyrir mig og virkilega ánægður með það hvernig hún er að koma inn í þetta hjá okkur"
„Ég er samt alveg með lappirnar á jörðinni. Ég dæmi ekki leikmenn eftir viku, hún er búin að taka tvær, þrjár æfingar með okkur og spila þrjátíu mínútur. Hún þarf að spila meira og æfa meira til þess að ég sé að fara mynda mér fullmótaða skoðun á henni en hún var frábær í dag og tók færin sín vel og virðist vera miög öflugur slúttari sem er eitthvað sem við megum alveg við"
„Nýjasta tölfræðin er held ég þannig að við erum það lið sem að miðað við xG og skoruð mörk þá erum við að 'underperfoma' þar mest í deildinni. Við erum að skapa okkur mjög góð færi en við höfum ekki náð að skora eins mörg mörk og við ættum að vera búnar að skora"
„Hún var klárlega að skila mjög góðu þar þannig ég væri mjög sáttur ef þetta er það sem koma skal hjá liðinu og við förum að nýta færin okkar aðeins betur og það er ótrúlega gaman, ég held það sjáist örugglega á mér hversu mikill léttir það er fyrir mig að við þurfum ekki að skapa okkur 90 færi til að skora fjögur mörk heldur eru bara einhver sautján nóg" sagði Gylfi Tryggvason.
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | FH | 11 | +21 | 26 |
| 2 | Breiðablik | 11 | +16 | 24 |
| 3 | Stjarnan | 11 | +9 | 21 |
| 4 | ÍBV | 12 | -1 | 20 |
| 5 | Grindavík/Njarðvík | 12 | -7 | 15 |
| 6 | Þróttur R. | 12 | -5 | 13 |
| 7 | Fram | 12 | -12 | 13 |
| 8 | Þór/KA | 12 | -5 | 12 |
| 9 | Valur | 11 | -4 | 10 |
| 10 | Víkingur R. | 12 | -12 | 10 |





