Fotbolti.net
20.07.26 - 23:40
Ívan Guðjón Baldursson

2. deild kvenna: Fjölnir á toppinn - Jafnt í Mosfellsbæ

2. deild kvenna: Fjölnir á toppinn - Jafnt í Mosfellsbæ
Canon

Mynd: Fjölnir

Hertz
Það fóru tveir leikir fram í 2. deild kvenna fyrr í kvöld þar sem Fjölnir tryggði sér toppsætið með þægilegum sigri á útivelli gegn KÞ.
Ester Lilja Harðardóttir skoraði eina markið í fyrri hálfleik svo gestirnir úr Grafarvoginum leiddu, en heimastelpur í liði KÞ, sem allar eru fæddar á árunum 2007-2009, jöfnuðu á 53. mínútu. Þóra Guðrún Einarsdóttir Bríem var þar á ferðinni.

KÞ tókst að halda stöðunni jafnri í rúman stundarfjórðung en réðu ekki lengi við sterkt lið Fjölnis. Harpa Sól Sigurðardóttir endurheimti forystuna á 70. mínútu og áttu Joana Verge, Sæunn Helgadóttir og Íris Pálsdóttir allar eftir að bæta við mörkum á lokakaflanum, svo lokatölur urðu 1-5.

Fjölnir er með 25 stig eftir 10 umferðir, einu stigi fyrir ofan Einherja og Vestra í toppbaráttunni.

Fylkir og Afturelding fylgja fast á eftir í næstu sætum fyrir neðan og áttust þau við í innbyrðisslag í kvöld. Byrjunin lofaði góðu eftir tvö mörk á fyrstu 20 mínútunum.

Hildur Anna Brynjarsdóttir náði forystunni fyrir gestina úr Árbænum snemma leiks en Maria Baska jafnaði metin og var staðan 1-1 í leikhlé.

Hvorugu liði tókst að setja sigurmarkið í seinni hálfleik svo lokatölur urðu 1-1.

Fylkir er í fjórða sæti með 23 stig, tveimur stigum á eftir toppliði Fjölnis. Afturelding er með 22 stig.

KÞ 1 - 5 Fjölnir
0-1 Ester Lilja Harðardóttir ('30 )
1-1 Þóra Guðrún Einarsdóttir Briem ('53 )
1-2 Harpa Sól Sigurðardóttir ('70 )
1-3 Joana Roig Verge ('82 )
1-4 Sæunn Helgadóttir ('90 )
1-5 Íris Pálsdóttir ('93 )

Afturelding 1 - 1 Fylkir
0-1 Hildur Anna Brynjarsdóttir ('7 )
1-1 Maria Baska ('21 )
2. deild kvenna: Fjölnir á toppinn - Jafnt í Mosfellsbæ
Canon

Mynd: Afturelding

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Fjölnir10+4025
2Einherji10+5024
3Vestri10+3524
4Fylkir10+5723
5Afturelding10+2522
6Dalvík/Reynir10-714
710-1213
8Augnablik10-2013
9KFR10-427
10ÍR10-184
11Álftanes10-322
12Smári10-761
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.