Ágústa María úr Val í ÍBV (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ágústa María Valtýsdóttir er búin að skipta yfir til ÍBV eftir að hafa fengið lítinn spiltíma með Val á fyrri hluta tímabils í Bestu deild kvenna.
Valur er óvænt í fallbaráttu og vonast Ágústa til að fá meiri spiltíma í Vestmannaeyjum. Nýliðar ÍBV eru að reynast spútnik lið deildartímabilsins og sitja sem stendur í fjórða sæti með 20 stig eftir 12 umferðir - tíu stigum fyrir ofan Val.
Ágústa María er fædd 2008 og hefur spilað 18 leiki fyrir yngri landslið Íslands, þar af tvo með U19 liðinu.
Hún lék á láni hjá ÍBV hluta sumarsins 2024 og var lánuð til Hauka í fyrra, en þar fyrir utan hefur hún aðeins leikið fyrir uppeldisfélagið Val og KH á ferlinum.