Fotbolti.net
20.07.26 - 12:30
Kári Snorrason

Gary Martin heitur fyrir endurkomu til Íslands - „Sakna brauðstanganna á Pizza 67“

Lék síðast með Víkingi Ólafsvík hérlendis.

Lék síðast með Víkingi Ólafsvík hérlendis.

Canon

Mynd: Tómas Freyr Kristjánsson

Gary Martin hefur verið að gera góða hluti í Englandi frá því að hann yfirgaf Ísland fyrir tveimur árum.

Á síðasta tímabili vann hann Northern Premier League með Hebburn Town. Deildin er skráð sem 7-8. sterkasta deildin á Englandi en Gary var jafnframt markahæsti leikmaður deildarinnar með 26 mörk.

Gary kom fyrst til Íslands fyrir sextán árum þegar hann gekk til liðs við ÍA. Þessi litríki karakter hefur komið víða við en á Íslandi hefur hann einnig leikið með KR, Val, Víkingi R., ÍBV, Selfossi og Ólafsvíkingum.

Fótbolti.net ræddi við Gary, sem var að koma úr fríi frá Ibiza, um síðasta tímabil á Englandi og mögulega endurkomu til Íslands.
Mögulega hans mesta afrek
„Þetta var magnað tímabil fyrir mig og liðið, við gerðum hið ómögulega. Við vorum með stuðulinn 250/1 til að vinna deildina eftir fyrstu 3 leikina þar sem við vorum stigalausir. Svo small þetta bara hjá okkur sem hóp, liðið fór að spila vel, ég fór að skora og ég held að við höfum tapað 2 af síðustu 27 leikjunum,“ segir Gary og heldur áfram.

„Það var mikið afrek þar sem sum liðin sem við mættum voru að eyða um 18 milljónum króna á mánuði og voru með stóran hóp stuðningsmanna í hálfatvinnumannabolta, það bara þekkist ekki.“

„En þegar maður er kominn heim þarf maður að sanna sig þar sem maður er með ferilskrá. Fólk býst við að maður standi sig, sem ég gerði á síðasta tímabili. Að vinna deildina, verða markahæstur og besti leikmaður deildarinnar, 35 ára að verða 36, var kannski það besta sem ég hef nokkurn tíma afrekað,“ segir Gary.

Þreifingar frá íslenskum liðum
Gary yfirgaf Víking Ólafsvík eftir tímabilið 2024 og hefur síðan þá leikið í neðri deildunum á Englandi. Hann var spurður hvort íslensk lið hefðu haft samband við hann frá því að hann fór.

„Það hafa einhverjir spurt mig en ég held að þetta hafi bara verið til að kanna stöðuna. Mér hefur ekki liðið jafn vel í langan tíma, að vera hálf-atvinnumaður og vita að maður þarf bara að vera með hausinn við fótboltann þrjá daga í viku en ekki alla daga.“

„Síðustu árin mín á Íslandi voru svolítið þreytt og ef ég á að vera hreinskilinn þá var enginn neisti í mér eftir 2022 tímabilið með Selfossi. Við gáfum eftir í seinni hluta tímabilsins hafandi verið frábærir og mistókst að komast upp um deild,“ segir Gary.

Saknar brauðstanganna frá Pizza 67
Sérðu fyrir þér snúa aftur til Íslands?

„Já, auðvitað, en ég held ekki sem leikmaður, en sem þjálfari 100 prósent. Það er eitthvað sem ég myndi gjarnan vilja koma aftur til Íslands fyrir. Að koma með enska leikmenn til Íslands er líka eitthvað sem ég er að ræða við félög um, þar sem fleiri og fleiri leikmenn á Englandi eru að leita að tækifærum erlendis.“

Gary segist ekki hafa komið aftur til landsins frá því að hann fór 2024 en hyggst koma aftur bráðlega. „Ég hef núna getað notið sumranna og farið í frí í stað þess að spila fótbolta í maí, júní og júlí, sem hefur verið notalegt. En það er á listanum mínum að koma aftur í heimsókn. Ég sakna brauðstanganna frá Pizza 67,“ sagði Gary og hló.

Fylgist náið með Bestu deildinni
Hafandi verið í Englandi nú í tvö ár, fylgistu enn með íslenskum fótbolta?

„Ég skoða stöðutöfluna og úrslitin í hverri viku auðvitað. Það er ótrúlegt að sjá hvar sum lið eru núna miðað við þegar ég var að spila á mínum bestu árum. Ég skoða alltaf úrslitin hjá KR og það er gaman að sjá að þeir eru komnir aftur á réttan enda töflunnar þar sem þeir eiga heima.“

Gary segir magnað að sjá hvað FH er neðarlega í töflunni. „Fyrir mér voru þeir alltaf besta félagið á eftir KR og félag sem mann langaði alltaf að spila fyrir, þannig að það er mjög óvænt að sjá þá nálægt botninum með þá aðstöðu og völl sem þeir hafa.“

Ánægður með Rúnar Kristins
Gary er mikill KR-ingur eftir að hafa spilað með liðinu í fjögur ár undir stjórn Rúnars Kristinssonar. Hann segir ánægjulegt að sjá hvað bæði Rúnar og KR eru að gera gott mót.

„Rúnar mun alltaf gera frábæra hluti. Gefðu honum 11 verstu leikmenn deildarinnar í sama lið og hann myndi gera þá að liðsheild. Þannig er hann bara sem stjóri, hann fær hluti út úr leikmönnum sem ég held að enginn annar geti.“

„Það er alltaf gaman að sjá KR ganga vel, þar átti ég mín bestu ár á Íslandi. En maður býst alltaf við því að þeim gangi vel, enda stærsti klúbbur landsins.“


Heldur góðu sambandi
Ertu enn í sambandi við marga Íslendinga?

„Já, ég er í bandi við nokkra fyrrverandi liðsfélaga og nokkra aðra úr fótboltanum, þar sem það væri gaman að snúa aftur í fótboltann á Íslandi einn daginn þegar ég hætti alveg að spila, því landið gaf mér svo mikið.“

„Nokkrir þjálfarar hafa heyrt í mér til að spyrjast fyrir um leikmenn og afla upplýsinga fyrir þá, þar sem þeir vildu kanna bakgrunn ákveðinna leikmanna sem þeir voru að íhuga að fá til félagsins, þannig að ég hef líka haldið sambandi þannig.“

„Ég mun alltaf vera í sambandi við fólkið þar sem hluti af mér verður alltaf á Íslandi,“ segir Gary að lokum.
Skoraði 188 mörk í 340 leikjum á Íslandi.

Skoraði 188 mörk í 340 leikjum á Íslandi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Vann bikarinn í tvígang og deildina einu sinni með KR.

Vann bikarinn í tvígang og deildina einu sinni með KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Segir neistann hafa slökknað eftir tímabilið 2022.

Segir neistann hafa slökknað eftir tímabilið 2022.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gekk til liðs við ÍA árið 2010, þá aðeins tvítugur.

Gekk til liðs við ÍA árið 2010, þá aðeins tvítugur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir

Lék með sjö mismunandi liðum á Íslandi.

Lék með sjö mismunandi liðum á Íslandi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Gefðu honum 11 verstu leikmenn deildarinnar í sama lið og hann myndi gera þá að liðsheild.“

„Gefðu honum 11 verstu leikmenn deildarinnar í sama lið og hann myndi gera þá að liðsheild.“

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skoðar alltaf úrslitin hjá KR.

Skoðar alltaf úrslitin hjá KR.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.