Hafnar evrópskum félögum fyrir Sádi-Arabíu

Sarr i fjandslag gegn Martin Ödegaard.

Mynd: EPA

Hann var lykilmaður í liði Lens á síðustu leiktíð.

Mynd: EPA

Sarr i fjandslag gegn Martin Ödegaard.

Mynd: EPA
Franski miðvörðurinn Malang Sarr er að hafna evrópskum félagsliðum til að skipta frekar til Neom SC í Sádi-Arabíu.
Fabrizio Romano greinir frá þessu en Sarr er samningslaus eftir að hafa verið lykilmaður í uppgangi Lens á síðustu leiktíð. Hann hjálpaði Lens að ná ótrúlegum árangri þegar liðið endaði í öðru sæti frönsku deildarinnar og vann bikarinn.
Sarr hafnaði samningstilboði frá Lens og eru fréttamiðlar sem segja hann hafa neitað Marseille, Atlético Madrid og Fenerbahce til að fara frekar til Arabíu.
Sarr fær góðan launapakka hjá Neom alveg skattfrjálst, en hann er 27 ára gamall og þótti gríðarlegt efni á sínum yngri árum.
Hann ólst upp hjá Nice og skipti til Chelsea sumarið 2020. Hann lék 44 leiki fyrir yngri landslið Frakklands en hefur aldrei fengið tækifæri með A-landsliðinu.
Hjá Neom verður hann samherji fyrrum úrvalsdeildarleikmannanna Saïd Benrahma og Alexandre Lacazette. Neom endaði í áttunda sæti sádi-arabísku deildarinnar á síðustu leiktíð með 45 stig úr 34 leikjum.